Fotbolti.net
17.06.20 - 19:36
Anton Freyr Jónsson

Deano: Alltaf erfitt að mæta í Akraneshöllina

Auglýsing
Dean Edward Martin var ánægður að leikslok

Dean Edward Martin var ánægður að leikslok

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin þjálfari Selfossar var nokkuð brattur eftir 4-3 útisigur á Kára í Akraneshöllinni í 1. umferð 2.deildar karla.
"Já ég er sáttur miða við hvernig við spiluðum, við látum boltan ganga vel og skorurm 4 mjög góð mörk og að mínu mati gefum við nokkur mörk sem Kári skorar."


"Þetta er bara fótbolti, þú verður að læra að klára leikinn ef þú ert í góðri stöðu, þú verður bara að klára þetta en við héldum áfram og náðum að halda út og við sættum okkur við þennan 4-3 sigur í fyrsta leik á erfiðum útivelli."

Hrvoje Tokic var stórkostlegur í dag og skoraði 3 mörk. Deano var spurður hvort það gæfi gæðamuninn að hafa svona góðan leikmann í 2.deildinni

"Auðvitað, þetta er toppstrákur líka og mjög góður í hóp."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.