Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. júní 2022 10:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Porto staðfestir félagsskipti Vieira til Arsenal
Mynd: UEFA
Porto hefur staðfest að félagið hefur samþykkt tilboð Arsenal í Fabio Vieira.

Kaupverðið er 38 milljónir punda en fjórar milljónir af því eru árangurstengdar. Það þarf að klára einhver smáatriði og má búast við því að félagsskipting gangi í gegn á næstu dögum.

Þessi 22 ára gamli Portúgali er mjög spennandi en hann lék 27 leiki fyrir Porto í deildinni á síðustu leiktíð, hann lagði upp 14 mörk og skoraði sex. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður en getur líka spilað aftar og sem fölsk nía.

Vieira lék með U21 árs landsliði Portúgals í undankeppni EM en liðið valtaði yfir D riðil þar sem Ísland tryggði sér sæti í umspili með sigri á Kýpur á dögunum.

Vieira verður annar leikmaðurinn sem Arsenal fær í sumar. Áður voru kaupin á Marquinhos, 19 ára gömlu kantmanni frá Brasilíu.


Athugasemdir
banner