Fotbolti.net
17.06.23 - 21:58
Anton Freyr Jónsson

Willum: Áttum ekki að tapa þessum leik

Auglýsing
Willum: Áttum ekki að tapa þessum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland tapaði fyrir Slóvakíu á Laugardalsvelli í kvöld, slök færanýting varð Íslandi hvað helst að falli í leiknum og draumurinn um að komast á EM í Þýskalandi er orðinn afskaplega fjarlægur.

Willum Þór Willumsson átti mjög góðan leik fyrir Ísland en hann lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir A-landsliðið og fékk tækifæri í byrjunarliðinu.
„Mér fannst við byrja leikinn vel. Fyrri hálfleikurinn var góður og fyrstu 15-20 mínúturnar fáum við 3-4 góða möguleika og stöður sem við áttum að nýta betur. Við eigum ekki að tapa þessum leik," sagði Willum Þór.

„Það fór mikil orka í fyrstu mínúturnar og við höfðum lagt það upp fyrir leik að mæta af krafti og við gerðum það vel. Við þurftum að nýta það að hafa yfirhöndina."

„Við vorum aðeins þreyttir í seinni hálfleik en mér fannst við gera þetta allt í lagi, þeir voru ekki að skapa neitt þannig séð en skora svo þetta skítamark."

„Mér leið mjög vel. Ég er ekki hægri kantur alveg að upplagi en get spilað það og leið nokkuð vel í leiknum. Þetta var minn fyrsti leikur á Laugardalsvelli og það var ógeðslega gaman að spila, maður finnur fyrir áhorfendunum og það gefur manni aukakraft."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Willum meðal annars
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.