Arnar: Ástæða fyrir því að Englendingar eru ekki taldir sigurstranglegastir

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Englendingar og Króatar eru að bjóða okkur upp á mikla skemmtun en staðan er 2-2 í hálfleik.
Harry Kane skoraði bæði mörk Englendinga en Króatía jafnaði í tvígang. Martin Baturina skoraði fyrra markið og Petaar Musa skoraði í blálok fyrri hálfleiksins.

TENGT EFNI
Sjáðu markið: Kane skoraði úr víti í annarri tilraun
„Við setjum spurningamerki við fáránlega lágvörn Englendinga, engin pressa á boltamanninum. En við verðum að að gefa Króötunum kredit. Þetta eru engir bjánar í fótbolta og geggjuð tvö mörk hjá þeim," sagði Arnar Gunnlaugsson í umfjölluninni á RÚV.
England er að bíða eftir því að vinna heimsmeistaramótið í fyrsta sinn síðan 1966 en Arnar gagnrýndi liðið.
„Það er ástæða fyrir því að þeir eru ekki taldir sigurstranglegastir af veðbönkum heimsins, það eru þessi mörk sem Króatar hafa skorað. Frábær mörk af þeirra hálfu en ef við setjum á okkur Englands gleraugun þá eru þetta klárlega mistök í fyrra markinu og við setjum spurningamerki við slaka lágvörn í seinna markinu."

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!