Fotbolti.net
17.06.26 - 19:00
Kristján Hrafn Kristjánsson

Badu: Þetta er mjög pirrandi

Auglýsing
Badu: Þetta er mjög pirrandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

Vestri fengu Ægi í heimsókn á Ísafjörð fyrr í dag. Leikurinn var partur af 15. umferð Lengjudeildarinnar og var spilaður mun fyrr en 15. umferðin sjálf vegna þess að Vestri spilar Evrópuleik á sama dag og 15. umferðin fer fram. 

Vestri vann 3-2 sigur og fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Vestri 3 - 2 Ægir

Ég er sáttur að ná í þrjú stig en það var meira stress en það hefði þurft að vera í þessum leik". Sagði Badu eftir sigurinn gegn Ægi.

Vestri hefur átt í erfiðleikum með að halda stöðuleika í deildinni og hafa einungis einu sinni náð að tengja saman sigurleiki, hvað þarf Vestraliðið að gera til að ná meiri stöðuleika á leik sínum?

Ég er sammála og þetta er mjög pirrandi, við höfum aldrei náð að hafa sama byrjunarliðið tvo leiki í röð í sumar og það er erfitt að halda dampi þegar það eru svona miklar breytingar. Við erum í betra standi núna en við vorum fyrr á tímabilinu og ég vona að þetta komi".


Vestri endurheimti Thibang Cafu Phete úr meiðslum fyrir leikinn en hann fór síðan út af í hálfleik, af hverju var það?


„Vorum bara að passa hann, hann var smá stífur aftan á læri og við vildum ekki taka neina sénsa með hann".


Þórður Gunnar Hafþórsson fór einnig meiddur af velli, það var eftir eftir markið sem hann skoraði. Í aðdraganda marksins fékk hann boltann í andlitið. Fór hann af velli vegna þess að hann fékk boltann í andlitið?

Já það var einmitt út af því, Þórður hefur ekki klárað heilan leik í sumar og það er líka leikur á Sunnudaginn sem við vorum að hugsa um þegar við skiptum honum út af".


Vestri fengu heldur betur erfiðan andstæðing í undankeppni Evrópudeildarinnar í Qarabag frá Aserbaídsjan, hver voru fyrstu viðbrögð þín eftir að þú sást dráttinn?

„Þetta verður langt ferðalag sem við erum að fara í , en það er líka mjög spennandi að fá að spila þessa leiki".


Vestri mætir Aftureldingu á Sunnudaginn, hvernig ætlið þið að nálgast þann leik?

„Afturelding eru gott lið og við erum það líka, við ætlum að sýna hversu góðir við erum".


Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.