Einhver séns á U-beygju hjá Salah?

Mohamed Salah.

Mynd: EPA

Mohamed Salah.

Mynd: EPA
„Enginn möguleiki," segir í grein The Athletic um möguleikann á því að Mohamed Salah verði áfram hjá Liverpool eftir stjóraskipti félagsins.
Samkvæmt miðlinum breytir brotthvarf Arne Slot og ráðning Andoni Iraola engu um framtíð egypska sóknarmannsins sem kvaddi stuðningsmenn Liverpool í lok síðasta tímabils eftir nærri níu ára farsælt tímabil hjá félaginu.

Salah átti glæsilegan feril með Liverpool og fékk tilfinningaríka kveðjustund á Anfield þegar tímabilinu lauk. Allir aðilar voru sammála um að rétti tíminn væri kominn til að skilja að.
Forráðamenn Liverpool vinna nú að því að fylla skarð Salah í sóknarlínu liðsins fyrir komandi tímabil, á meðan hinn 34 ára gamli Egypti skoðar næstu skref á ferlinum.