Guðni svekktur: Vorum með þær í köðlunum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er úr leik í Mjólkurbikar kvenna eftir tap gegn ÍBV í Eyjum í átta liða úrslitum í dag. Fótbolti.net ræddi við Guðna Eiríksson, þjálfara FH, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 2 FH
„Við vorum eiginlega með þær í köðlunum lengi vel. Þetta var leikplan ÍBV, vel gert og ég óska þeim til hamingju með að vera komnar í undanúrslit," sagði Guðni.
„Maður þarf að bera virðingu fyrir færunum sem maður fær, þú þekkir það sjálfur þegar þú varst að spila. Þegar þú kemur þér í stöðurnar þarftu að klára færin, við gerðum það ekki í dag og þá er þetta hættan. Að mínu viti gefum við þeim tvö mörk, við hjálpum þeim þar að auki sem er algjör óþarfi," sagði Guðni við markahrókinn Tryggva Guðmundsson sem ræddi við hann.
FH er á toppnum í Bestu deildinni, stigi á undan Breiðabliki. Liðið fær Val í heimsókn á þriðjudaginn.
„Það er góður gangur á FH-liðinu. Liðið er fullt sjálfstrausts og finnst gaman að spila þann bolta sem við erum að spila. Það er erfitt að eiga við okkur þegar við erum í stuði. Við vildum svo sannarlega komast áfram, höfum á undanförnum árum komist í undanúrslit í þrígang, það er svekkjandi og sárt að ná því ekki í dag," sagði Guðni.