Fotbolti.net
17.06.26 - 18:14
Sigurjón Árni Torfason

Jóhann Birnir: Maður eiginlega bara hálf táraðist þegar hann skoraði

Auglýsing
Jóhann Birnir var hæstánægður eftir sigur gegn Gróttu

Jóhann Birnir var hæstánægður eftir sigur gegn Gróttu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
ÍR tók á móti Gróttu í dag í 9. umferð Lengjudeildar karla. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna úr Breiðholtinu eftir mjög fjörugan og skemmtilegan leik. Þetta var afar mikilvægur sigur fyrir ÍR, sem hefur átt í erfiðleikum eftir brösótta byrjun á mótinu.
Lestu um leikinn: ÍR 2 - 1 Grótta
Leikurinn var kaflaskiptur og mjög fjörugur. Bæði lið sköpuðu sér góð færi og hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk, en að lokum féll sigurinn ÍR-megin í dag. 

„Bara gott að vinna eftir smá ströggl á okkur síðustu leiki, þannig bara flott. Karakter í liðinu að klára þennan leik, þetta var erfiður leikur.´´

Ívan Óli Santos reyndist hetja ÍR í dag þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark liðsins. Markið var sérstaklega ánægjulegt fyrir Ívan, en þetta var fyrsti keppnisleikur hans í rúm þrjú ár.

„Þetta var bara æðislegt fyrir hann og maður eiginlega bara hálftáraðist þegar hann skoraði sko, þetta var alveg þannig móment, það er svo langt síðan hann spilaði alvöruleik og bara æðislegt fyrir hann, hann er búinn að leggja þvílíkt hart að sér og verið svona stór hluti af hópnum allan tímann, bara sýnt alveg rosalega flottan karakter, bara hefði ekki getað gerst fyrir betri persónu.´´

Þetta var mikilvægur sigur fyrir ÍR-inga eftir að hafa ekki náð að kaupa sér sigur í undanförnum leikjum. Með sigrinum í dag fóru þeir upp fyrir bæði Ægi og Grindavík í deildinni.

„Það sem breyttist er náttúrulega bara að við skoruðum fleiri mörk en andstæðingurinn, það er basically it sko, ég meina í þessum leikjum, þá höfum við verið að spila allt í lagi en verið að gera dálítið kjánaleg mistök og það hefur kostað okkur dýrt. Þetta var bara mjög mikilvægt, allir leikir eru mikilvægir og bara flott´.´

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.