Fotbolti.net
17.06.26 - 19:53
Kristján Hrafn Kristjánsson

Nenad: Auðvitað þarf maður að vinna sér inn heppnina

Auglýsing
Nenad: Auðvitað þarf maður að vinna sér inn heppnina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

Ægir mætti liði Vestra á Kerecis-vellinum á Ísafirði fyrr í dag. Leikurinn var partur af 15. umferð Lengjudeildarinnar og var spilaður mun fyrr en 15. umferðin sjálf vegna þess að Vestri spilar Evrópuleik sama dag og 15. umferðin fer fram. 

Fótbolti.net ræddi við Nenad Zivanovic þjálfara Ægis eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Vestri 3 - 2 Ægir

3-2 tap á Ísafirði í dag, hver eru fyrstu viðbrögð eftir leik?

Mér fannst leikurinn vera jafn, bæði lið fengu góða sénsa, það var áhugavert að horfa á leikinn og ég held að áhorfendur sjái ekki eftir því að hafa komið. Leikurinn var mikið um góðar stöður, mörg mörk og hraðar sóknir, svo leikurinn hafði allt sem hann á að hafa. Vestri voru aðeins betri í fyrri hálfleik, í seinni held ég að Ægir hafi verið betri. Vestri fékk nokkra sénsa og við sömuleiðis. Ég held að jafntefli hefði verið sanngjörn niðurstaða".


Ægir lenti 2-0 undir í fyrri hálfleik en náði að minnka muninn í 2-1, þeir náðu ekki að nýta sér meðbyrinn eftir markið nógu vel, hvers vegna var það?

Það sem gerðist var að Vestri skorar tvö ódýr mörk, fyrsta var beint úr horni sem vindurinn spilaði mikið inn í og í öðru markinu slökkti mitt lið algjörlega á sér og Balde var skilin eftir aleinn í markteignum. Eftir það höfum við engu að tapa og skorum mark. Í seinni hálfleik vorum við með vindinn, en náðum ekki að nýta okkur vindinn nógu vel, við spiluðum betur með mótvind heldur en meðvind, síðan kom þriðja mark Vestra og þá fór Vestri niður og þeir voru þéttir."


Ægir átti góðan kafla fyrr á tímabilinu þar sem þeir unnu tvo leiki í röð, núna hefur liðið tapað tveimur leikjum í röð. Hvað þarf liðið að gera til að komast aftur á sigurbraut?

Við þurfum kannski aðeins að hafa heppnina með okkur, í þriðja marki Vestra er miðvörðurinn minn að hreinsa og boltinn fer beint í andlitið á leikmanni Vestra, honum blæðir og boltinn dettur beint fyrir hann og hann skorar gott mark. Svo við þurfum smá heppni, en auðvitað þarf maður að vinna sér inn heppnina. Við þurfum að bæta okkur í að verjast föstum leikatriðum, við þurfum að vera agaðri og vera klínískir fyrir framan mark andstæðingana".


Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.