Ósáttur Rúnar Páll: Miðað við færin áttum við að vinna þennan leik

Rúnar Páll ósáttur eftir tap gegn ÍR í dag

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Rúnar Páll ósáttur eftir tap gegn ÍR í dag

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

„Já, bara svekkjandi að tapa þessum leik. Það er nú bara þannig. Við komum okkur alveg í nógu færum til að klára þennan leik og því miður fór sem fór´´. sagði Rúnar Páll við fréttamann Fótbolti.net eftir þennan skemmtilega leik.
Leikurinn var mjög kaflaskiptur og hefði getað dottið hvorum megin sem var, þar sem bæði lið áttu góða kafla og sköpuðu sér hættuleg færi.
„Miðað við færin þá áttum við að vinna þennan leik. Það náttúrulega bara segir sig sjálft. ÍR-ingarnir eru sýnd veiði en ekki gefinn, það er bara eins og það er þó það hafi verið neðarlega í töflunni. En nei nei, þeir bara unnu okkur hérna í dag og við bara verðum að vinna þá á okkar heimavelli. Það er bara þannig´´.



