Trump fær að lyfta bikarnum

Donald Trump með Gianni Infantino, forseta FIFA.

Mynd: EPA

Trump fagnaði með Chelsea á HM félagsliða.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun að öllum líkindum gegna lykilhlutverki við verðlaunaafhendingu HM sem fer núna fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Samkvæmt upplýsingum talkSPORT gerir FIFA engar athugasemdir við að Trump afhendi fyrirliða heimsmeistaranna bikarinn og taki jafnvel þátt í fagnaðarlátunum á verðlaunapallinum eins og hann gerði á HM félagsliða í fyrra.

Forsetinn hefur þegar fengið þau skilaboð frá FIFA að sambandið vilji að hann afhendi sigurliðinu bikarinn eftir úrslitaleikinn, sem fram fer á MetLife Stadium þann 19. júlí.
Hefðbundin framkvæmd FIFA hefur hingað til verið sú að bikarinn sé geymdur á stalli þar til meðlimur sigurliðsins sækir hann og ber hann upp á verðlaunapallinn. Heimildir herma að FIFA muni láta það alfarið í hendur Trump hvort hann kjósi að vera með leikmönnum á meðan bikarnum verður lyft eða halda sig til hliðar með öðrum gestum og embættismönnum.
Samkvæmt heimildum innan Hvíta hússins er talið líklegt að Trump muni á ný kjósa að fagna með sigurliðinu.
Trump var ekki viðstaddur opnunarleik bandaríska landsliðsins gegn Paragvæ vegna annarra skuldbindinga, en gert er ráð fyrir að hann verði á meðal gesta á úrslitaleiknum í sumar.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!