Varð heimsfrægur fyrir HM og fær nú félagaskipti

Tim Payne eltir hér leikmann Póllands í leik með Nýja-Sjálandi.

Mynd: EPA

Saga Tim Payne, leikmanns Nýja-Sjálands, er svo sannarlega ein af sögum heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Fyrir mótið var Payne algjörlega óþekktur utan heimalandsins en hann öðlaðist heimsfrægð eftir að áhrifavaldur frá Argentínu vakti athygli á honum.
Payne var nefnilega sá leikmaður mótsins sem var með fæsta fylgjendur á samfélagsmiðlum áður en það fór af stað. En eftir að áhrifavaldurinn El Scarso vakti athygli á honum þá fékk hann milljónir fylgjenda. Hann er núna með tæplega 6 milljónir að fylgja sér á Instagram.
Payne spilaði sinn fyrsta leik á HM aðfaranótt þriðjudags og lék vel í óvæntu jafntefli Nýja-Sjálands gegn Íran. Eftir leikinn var svo sagt frá því að Payne væri að taka næsta skref á ferlinum og væri að ganga frá samningi við Club Olimpia sem er stærsta félagið í Paragvæ.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!