Pólverjinn, Pawel Grudzinski hefur gengið til liðs við Njarðvíkur í Inkasso-deildinni. Hann kemur til Njarðvíkur frá Víði í Garði.
Pawel er 26 ára Pólverji sem hefur leikið hér á landi undanfarin ár. Hann gekk til liðs við Njarðvík fyrir tímabilið árið 2014 frá Reyni Sandgerði og á að baki 25 mótsleiki með Njarðvík og skorað í þeim leikjum 2 mörk. Hann gekk til liðs við Víði vorið 2016 frá Njarðvík.
Njarðvík er í 10. sæti Inkasso-deildarinnar með 10 stig að loknum 11 umferðum.
Þá hefur Atli Freyr Ottesen Pálsson gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Álftanes en Atli Freyr kom til liðs við Njarðvik veturinn 2017. Atli Freyr lék alls 35 mótsleiki fyrir Njarðvík og skoraði 8 mörk í þeim.
Athugasemdir