FCK selur Hákon til Lille fyrir rúmlega 2,5 milljarða

Hákon Arnar Haraldsson fer í læknisskoðun hjá Lille í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FC Kaupmannahöfn hefur komist að samkomulagi um að selja Hákon Arnar Haraldsson til franska félagsins Lille fyrir 17 milljónir evra, rúmlega 2,5 milljarða íslenskra króna.
Þetta fullyrðir BT í Danmörku. Sagt er að allt sé klárt, nú eigi bara eftir að ganga frá formsatriðum.
Hákon sé á leið í læknisskoðun hjá franska félaginu seinna í dag.

Það eru aðeins fjórir mánuðir síðan Hákon gerði nýjan samning við FCK en hann er nú að fljúga á brott. Viðræðurnar milli FCK og Lille hafa staðið yfir í langan tíma.
Þegar Hákon var seldur til FCK frá ÍA fyrir fjórum árum var samið um að ÍA fengi prósentu af næstu sölu Hákons. Sögusagnir hafa verið um 15-20% og því er ÍA að fara að fá háa upphæð í sinn hlut.
Hákon er tvítugur Skagamaður sem hefur verið hjá FCK síðan 2019 og vakið mikla athygli. Hann hjálpaði liðinu að verða danskur meistari á liðnu tímabili. Hann er sóknarmiðjumaður sem hefur leikið ellefu landsleiki fyrir Ísland og skorað eitt mark.
Lille hafnaði í fimmta sæti frönsku deildarinnar á liðnu tímabili og tekur þátt í Sambandsdeild Evrópu.
Fréttin hefur verið uppfærð: Upphaflega sagði BT kaupverðið vera meira en 15 milljónir evra og kom svo með nákvæmari tölu.