Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. ágúst 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
MLS: Guðlaugur Victor lék allan leikinn í naumu tapi
Mynd: DC United

Los Angeles FC 1 - 0 DC United
1-0 Kwadwo Opoku ('67)
Rautt spjald: Steven Birnbaum, DC United ('60)


Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn á miðjunni hjá DC United sem tapaði 1-0 gegn Los Angeles FC í MLS deildinni í nótt.

Leikurinn var nokkuð jafn þar til Steven Birnbaum fékk tvö gul spjöld í upphafi síðari hálfleiks og var rekinn af velli.

Tíu leikmenn DC réðu ekki við sterkt lið Los Angeles og skoraði Kwadwo Opoku eina mark leiksins á 67. mínútu.

Wayne Rooney er þjálfari DC og virðist hrifinn af Guðlaugi Victori. Til gamans má geta að Ravel Morrison spilaði fyrstu 82 mínútur leiksins við hlið Victors en í liði Los Angeles mátti finna Carlos Vela. Gareth Bale og Giorgio Chiellini voru hvíldir.

Christian Benteke er nýgenginn til liðs við DC en var fjarverandi vegna meiðsla.

DC er í neðsta sæti með 22 stig eftir 25 umferðir á meðan Los Angeles trónir á toppinum með 57 stig. LA er á fleygiferð og var þetta sjöundi deildarsigurinn í röð.


Athugasemdir
banner
banner
banner