Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 17. ágúst 2022 13:30
Elvar Geir Magnússon
Newcastle gerir annað tilboð í Joao Pedro
Mynd: Getty Images
Newcastle undirbýr nýtt tilboð í brasilíska sóknarleikmanninn Joao Pedro hjá Watford eftir að fyrsta tilboði, upp á rúmlega 20 milljónir punda, var hafnað.

Watford vill ekki selja Pedro þar sem félagið seldi Emmanuel Dennis til Nottingham Forest á dögunum.

Pedro er tvítugur og hefur spilað 78 leiki fyrir Watford eftir að hann kom frá Fluminese árið 2019. Hann hefur skorað fjórtán mörk.

Pedro hefur byrjað alla leiki liðsins í Championship-deildinni í upphafi tímabils og skoraði sigurmarkið gegn Sheffield United.

Crystal Palace er rétt eins og Newcastle að reyna að styrkja hóp sinn og hefur áhuga á öðrum Watford leikmanni, Ismaila Sarr. Leeds hefur einnig áhuga á þessum 24 ára Senegala sem skoraði úr mögnuðu langskoti gegn West Brom nýlega.

Athugasemdir
banner
banner
banner