15.09.26 - 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Aftur skoraði nýi maðurinn seint sigurmark

Carlos Espi var aftur hetjan en það var Kylian Mbappe sem lagði upp markið

Mynd: EPA

Real Madrid vann sinn fimmta leik í La Liga á tímabilinu þegar liðið lagði Elche 3-2, en Madrídingar þurftu svo sannarlega að hafa fyrir stigunum þremur.
Madrídingar gátu varla beðið um mikið betri byrjun. Á 25. mínútu fengu þeir aukaspyrnu sem Arda Güler skaut í stöng. Boltinn fór þaðan í Matias Dituro, markvörð Elche, og í netið á meðan hann stóð hreyfingarlaus.
Kylian Mbappe var næstur á blað og kom Real Madrid í 2-0 á 33. mínútu. Þetta var fjórði deildarleikurinn sem hann skorar í á tímabilinu og sjöunda deildarmark hans.
Kannski töldu einhverjir að þar með væri leikurinn búinn en Elche sýndi að svo var ekki. Abiel Osorio minnkaði muninn með skalla á 71. mínútu eftir að Lucas Capeda hafði komið sér framhjá Trent Alexander-Arnold og sent frábæran bolta inn á teiginn. Osorio stýrði boltanum undir Thibaut Courtois og í netið.
Jöfnunarmarkið kom tólf mínútum síðar eftir laglegt samspil heimamanna. Boltinn endaði hjá Fer Nino sem skaut honum meðfram grasinu og í fjærhornið.
Real Madrid átti þó eitt spil eftir á hendi og aftur var það Carlos Espi. Hann tryggði Madrídingum sigur gegn Espanyol í ágúst og endurtók leikinn nú þegar hann kom inn á á 87. mínútu og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir sendingu frá Mbappe.
Mbappe slapp inn fyrir og sá Espi sér við hlið. Í stað þess að reyna sjálfur lagði hann boltann til hliðar og Espi rúllaði honum í autt markið.
Espi kom til Real Madrid frá Levante fyrir 25 milljónir evra í sumar og hefur nú skorað tvö deildarmörk fyrir félagið. Bæði hafa reynst gríðarlega mikilvæg.
Real Madrid er í 2. sæti með 15 stig eftir sex leiki, jafnmörg og Barcelona sem á leik til góða. Elche situr á botninum með tvö stig.
Alaves 0 - 1 Valencia
0-1 Luis Rioja ('78 )
Elche 2 - 3 Real Madrid
0-1 Matias Dituro ('25 , sjálfsmark)
0-2 Kylian Mbappe ('33 )
1-2 Abiel Osorio ('71 )
2-2 Fer Nino ('83 )
2-3 Carlos Espi ('90 )
Rayo Vallecano 2 - 1 Espanyol
1-0 Alvaro Garcia ('3 )
2-0 Adria Pedrosa ('26 )
2-1 Roberto Fernandez ('54 )
Rautt spjald: Omar El Hilali, Espanyol ('90)

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 8 | +27 | 24 |
| 2 | Atletico Madrid | 8 | +10 | 19 |
| 3 | Betis | 7 | +2 | 16 |
| 4 | Real Madrid | 7 | +10 | 15 |
| 5 | Sevilla | 7 | +1 | 13 |
| 6 | Alaves | 8 | +4 | 11 |
| 7 | Deportivo | 7 | +2 | 10 |
| 8 | Real Sociedad | 7 | -4 | 10 |
| 9 | Villarreal | 7 | +1 | 8 |
| 10 | Athletic | 6 | +1 | 8 |
| 11 | Espanyol | 8 | 0 | 8 |
| 12 | Vallecano | 7 | -5 | 8 |
| 13 | Getafe | 8 | -6 | 8 |
| 14 | Osasuna | 7 | -7 | 8 |
| 15 | Celta | 7 | +2 | 7 |
| 16 | Racing Santander | 7 | -10 | 7 |
| 17 | Levante | 6 | -4 | 5 |
| 18 | Elche | 7 | -6 | 5 |
| 19 | Malaga | 8 | -9 | 4 |
| 20 | Valencia | 7 | -9 | 4 |