Benjamín Jónsson er meðal varamarkvarða Fram á tímabilinu og er hann þessa stundina staddur í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem hann er á reynslu hjá Los Angeles FC.
Benjamín er markvörður annars flokks Fram og hefur áður spilað fótbolta í Bandaríkjunum þegar hann bjó þar. Hann spilaði þá í Suður-Kalíforníu og var fyrirliði síns liðs sem komst alla leið í úrslitakeppni í National Cup U16 ára liða.
Benni lék einn leik fyrir Fram í deildabikarnum 2020 en hefur ekki fengið að spreyta sig í keppnisleik með meistaraflokki síðan, enda er hann ekki einu sinni orðinn tvítugur.
Steve Cherundolo, goðsögn hjá Hannover og bandaríska landsliðinu, er aðalþjálfari hjá Los Angeles FC og má finna menn á borð við Giorgio Chiellini, Gareth Bale og Carlos Vela í leikmannahópi félagsins.