Fotbolti.net
17.08.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Chelsea setur gríðarlega háan verðmiða á Neto

Chelsea setur gríðarlega háan verðmiða á Neto
Canon

Mynd: EPA

Chelsea vill nálægt 100 milljónir punda fyrir Pedro Neto ef félagið ætlar að selja hann í sumar. Þetta segir heimildarmaður Daily Mail.

Neto, sem er 26 ára Portúgali, er á óskalistum í ensku úrvalsdeildinni og víðar. Al Hilal í Sádi-Arabíu vill fá hann. Það hefur þó ekkert formlegt tilboð borist í leikmanninn.
Neto er í miklum metum hjá Chelsea sem keypti hann frá Úlfunum fyrir 54 milljónir punda árið 2024.

Neto byrjaði sem hægri vængbakvörður í æfingaleik gegn Real Sociedad um helgina og þótti spila vel.

Xabi Alonso tók við Chelsea í sumar og hefur verið að setja sitt handbragð á liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.