Fotbolti.net
17.08.26 - 22:07
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalski bikarinn: Lecce úr leik - Volpato skoraði

Ítalski bikarinn: Lecce úr leik - Volpato skoraði
Canon

Mynd: EPA

Það fóru fjórir leikir fram í ítalska bikarnum í dag og datt Serie A lið Lecce úr leik eftir tap gegn Palermo.
Dominic Vavassori og Joel Pohjanpalo skoruðu mörkin fyrir Palermo í fyrri hálfleiknum. Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en gestirnir frá Lecce tóku algjöra stjórn á leiknum eftir leikhléð.

Þeim tókst þó ekki að minnka muninn þrátt fyrir að komast nokkrum sinnum í algjör dauðafæri, svo lokatölur urðu 2-0.

Cremonese sló Sampdoria þá úr leik á meðan Pisa hafði betur gegn Empoli eftir vítaspyrnukeppni.

Sassuolo vann að lokum auðveldan sigur gegn Cesena þar sem Cristian Volpato var meðal markaskorara. Hann komst í fréttirnar fyrr í sumar þegar hann fór með Ástralíu á HM og var svo gripinn fyrir hraðakstur með fíkniefni í blóðinu.

Palermo 2 - 0 Lecce

Cremonese 2 - 0 Sampdoria

Pisa 1 - 1 Empoli
4-3 í vítaspyrnukeppni

Sassuolo 3 - 0 Cesena
Ítalski bikarinn: Lecce úr leik - Volpato skoraði
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.