17.08.26 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Fram jafnar KR á stigum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 3 - 1 Stjarnan
1-0 Róbert Hauksson ('12 )
1-1 Emil Atlason ('34 )
2-1 Róbert Hauksson ('39 )
3-1 Már Ægisson ('62 )
1-0 Róbert Hauksson ('12 )
1-1 Emil Atlason ('34 )
2-1 Róbert Hauksson ('39 )
3-1 Már Ægisson ('62 )
Lestu um leikinn: Fram 3 - 1 Stjarnan
Fram tók á móti Stjörnunni í seinni leik kvöldsins í Bestu deild karla og fengu bæði lið færi á skemmtilegum upphafsmínútum áður en Róbert Hauksson skoraði fyrsta markið eftir frábæra fyrirgjöf frá Fred Saraiva.
Bæði lið héldu áfram að fá færi, Stjarnan átti skot í slá og stöng áður en Emil Atlason jafnaði metin eftir fyrirgjöf frá Jóhanni Árna Gunnarssyni. Emil gerði mjög vel að ná fyrstur til boltans og skora.
Fimm mínútum síðar skoraði Róbert Hauksson aftur til að endurheimta forystuna eftir góðan undirbúning Vuk Oskar Dimitrijevic.
Stjarnan fékk færi en tókst ekki að jafna fyrir leikhlé, svo staðan var 2-1 eftir fjörugan fyrri hálfleik. Bæði lið fengu góð færi í upphafi síðari hálfleiks en Már Ægisson tvöfaldaði forystu heimamanna með góðri afgreiðslu eftir frábæran undirbúning frá Vuk og staðan orðin 3-1 á 62. mínútu.
Birnir Snær Ingason átti skot í slá og fengu bæði lið færi til að skora en inn rataði boltinn ekki, svo lokatölur urðu 3-1 fyrir Fram sem jafnar KR á stigum í öðru sæti deildarinnar.
Fram er með 40 stig eftir 19 umferðir á meðan Stjarnan er í neðri hlutanum með 21 stig, fimm stigum frá fallsæti þegar stutt er í tvískiptingu.