Fotbolti.net
17.08.26 - 22:44
Kári Snorrason

„Víti er 0.76 í Xg á meðan mark er bara mark“

Auglýsing
„Ef boltinn er á leiðinni inn þá hefði ég haldið að þetta væri rautt spjald.“

„Ef boltinn er á leiðinni inn þá hefði ég haldið að þetta væri rautt spjald.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við eigum að klára þennan leik miðað við færi og stöður sem við fengum hérna í síðari hálfleik. Það er ekki spurning,“ sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir 2-2 jafntefli gegn HK í Lengjudeildinni í kvöld.

Afturelding fékk urmul færa ásamt því að brenna af vítaspyrnu. Vítið var dæmt í kjölfar þess að Aron Kristófer Lárusson, leikmaður HK, fékk boltann í hendina á marklínu HK.

„Auðvitað svíður það. Síðan ver hann með hendi á línu. Væntanlega var hann að bjarga marki. Spurning hvort að þetta sé rautt spjald eða hvað. Þeir allaveganna hagnast á því þarna að boltinn fari í hendina í stað þess að hann fari í markið.“
Lestu um leikinn: Afturelding 2 - 2 HK
Hefðiru viljað sjá rauða spjaldið fara á loft?
„Já, ég get alveg sagt það. Ef boltinn er á leiðinni inn þá hefði ég haldið að þetta væri rautt spjald - sama hvort þetta sé viljandi eða óviljandi.

Þeir taka mark af okkur með því að boltinn fari í hendina á honum. Það er erfiðara að skora úr víti. Víti er 0.76 í Xg á meðan mark er 1, það er bara mark,“
sagði Magnús eftir leik.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Afturelding er í 2. sæti deildarinnar með leik til góða.

Afturelding er í 2. sæti deildarinnar með leik til góða.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.19+2137
2Afturelding18+2236
3Fylkir19+734
4HK19+932
5Njarðvík19+632
6Grótta18+127
7Leiknir R.19+225
8Vestri19-1124
9ÍR19-722
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir19-328
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.