17.08.26 - 21:48
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Bjargaði stigi á 98. mínútu

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net

Mynd: EPA
Cardiff City 1 - 1 Wrexham
0-1 Kieffer Moore ('3 )
1-1 Rubin Colwill ('98)
0-1 Kieffer Moore ('3 )
1-1 Rubin Colwill ('98)
Cardiff City og Wrexham áttust við í eina leik kvöldsins í ensku Championship deildinni og náðu gestirnir forystunni strax á þriðju mínútu.
Kieffer Moore var þar á ferðinni og gerði mjög vel að klára erfitt og þröngt færi með marki.
Wrexham var sterkara liðið í þessum spennandi velska slag sem innihélt þó ekki mikið af marktækifærum.
Félagsliðið sögufræga, sem er í eigu Hollywoodleikaranna Rob McElhenney og Ryan Reynolds, leiddi því nánast allan leikinn en heimamönnum í Cardiff tókst að gera jöfnunarmark seint í uppbótartímanum.
Þar var Rubin Colwill á ferðinni þegar hann skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu á 98. mínútu, eftir að 6 mínútum hafði verið bætt við venjulegan leiktíma.
Lokatölur urðu því 1-1 og byrja velsku félögin á jafntefli. Swansea City er einnig í deildinni og er þetta í fyrsta sinn síðan 1981 sem þrjú velsk félagslið leika saman í enskri deild.
Til gamans má geta að markaskorarar kvöldsins eiga báðir landsleiki að baki fyrir Wales.