Fotbolti.net
17.08.26 - 20:52
Ívan Guðjón Baldursson

Bruno Fernandes í samningsviðræðum

Bruno Fernandes í samningsviðræðum
Canon

Mynd: EPA

Manchester United er í viðræðum við fyrirliðann sinn Bruno Fernandes um nýjan samning, en Portúgalinn er með eitt ár eftir af núverandi samningi og getur félagið virkjað auka ár.
Bruno búinn að ákveða að vera áfram hjá Man Utd
TENGT EFNI

Bruno búinn að ákveða að vera áfram hjá Man Utd

The Athletic greinir frá því að Rauðu djöflarnir vilji halda Bruno hamingjusömum og séu því búnir að bjóða honum nýjan og bættan samning til að verðlauna tryggð hans við félagið.

Bruno verður 32 ára í september og er eftirsóttur í Tyrklandi og Sádi-Arabíu. Þar bíða hans risastór samningstilboð, en miðjumaðurinn er talinn vilja vera áfram í Manchester.

Man Utd bauð honum nýjan samning í maí og eru viðræður farnar aftur af stað eftir sumarfrí.

Munu hafna öllum tilboðum í Bruno
TENGT EFNI

Munu hafna öllum tilboðum í Bruno

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.