17.08.26 - 22:43
Andri Stefánsson
Jón Þór: Ég er drullufúll með þetta
Auglýsing

Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Darri Bergmann varði mark Stjörnunnar í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hver mun verja mark Stjörnunnar gegn Þór? Verður það Darri Bergmann eða Árni Snær?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram fékk Stjörnuna í heimsókn í 19. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Fram unnu sterkan 3-1 sigur. Fótbolti.net ræddi við Jón Þór Hauksson, þjálfara Stjörnunnar, eftir tapið.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 1 Stjarnan
„Það er alltaf erfitt að lenda undir á móti þessu Fram-liði. Þeir eru öflugir, massífir og sterkir í því sem þeir gera. Við lentum 1-0 undir en mér fannst við ná góðum tökum á leiknum eftir það. Það var í raun okkar besti kafli í leiknum. Við jöfnuðum og það var gott mómentum með okkur á þeim tímapunkti. Því miður kom langur bolti upp sem við díluðum ekki nægilega vel við og lentum strax aftur 2-1 undir. Þá vorum við aftur komnir í þann erfiða leik að elta Fram. Mér fannst fyrri hálfleikurinn nokkuð vel spilaður hjá okkur og mér fannst við alls ekki síðra liðið í þeim hálfleik. Síðan misstum við aðeins móðinn þegar þriðja mark Fram kom og fórum að reyna að breyta hlutunum, sem gekk ekki,“ sagði Jón Þór eftir leik.
Jón Þór var spurður hvað hefði helst vantað upp á til að ná í stig eða jafnvel öll þrjú stigin úr leiknum.
„Það vantaði aðeins upp á hjá okkur í dag. Mér fannst ekki mikill munur á liðunum í þessum leik en þeir kláruðu sín færi vel.“
Liðið átti tvö skot í slá og eitt í stöng og var Jón Þór spurður hvort það gerði tapið enn meira svekkjandi.
„Já, það er alltaf svekkjandi að tapa. Ég er drullufúll með það.“
Liðið hafði unnið tvo leiki í röð fyrir þennan leik og var Jón Þór spurður hvernig lokaspretturinn á tímabilinu legðist í hann.
„Hann leggst vel í mig. Það býr hellingur í þessu liði og við þurfum að halda áfram að vinna í þeim hlutum.“
Darri Bergmann hélt sæti sínu í byrjunarliðinu og var Jón Þór spurður út í markmannsstöðuna.
„Hann kom inn í Keflavíkurleikinn, stóð sig vel og hélt sæti sínu í dag. Hann er klár og við erum með tvo flotta markmenn.“
Að lokum var Jón Þór spurður hvort Darri yrði áfram í markinu í næsta leik.
„Ég fer að spá í það þegar við þurfum að fara að hugsa um næsta leik.“