Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 6. sæti

17.08.26

Spáin fyrir enska - 6. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Núna er komið að topp sex í spánni fyrir ensku úrvalsdeildina. Í sjötta sætinu situr Tottenham sem hefur farið mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar.
Tottenham þarf að svara fyrir eitt versta tímabil í sögu félagsins. Eftir að hafa unnið Evrópudeildina og ráðið Thomas Frank sem stjóra fyrir síðasta tímabil voru væntingarnar miklar, en raunin varð sú að Tottenham þurfti sigur í lokaumferðinni til að tryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni. Tottenham hefur endað tvö tímabil í röð í 17. sæti sem er skammarlegt fyrir jafn stórt félag.

Það er þó ástæða til bjartsýni í Norður-London. Fjárhagsstaða félagsins er sterk og Tottenham hefur nýtt sér það til að styrkja hópinn verulega. Marcos Senesi og Jan Paul van Hecke koma inn í vörnina, Andy Robertson bætir við reynslu og gæðum og Mateus Fernandes var keyptur frá West Ham fyrir 85 milljónir punda. Skömmu síðar sló Spurs félagsmet með því að kaupa Sandro Tonali fyrir 92,5 milljónir punda.

Nú fær Roberto De Zerbi tækifæri til að móta liðið eftir eigin hugmyndum og byggja á þeirri vinnu sem hófst undir lok síðasta tímabils. Það er erfitt að gleyma hversu illa Spurs gekk áður en Ítalinn tók við, en viðsnúningurinn undir hans stjórn gefur stuðningsmönnum von um betri tíma. Tottenham ætti að geta horft upp töfluna á ný og stefnt á að komast aftur í Evrópusæti.

Stjórinn: Roberto De Zerbi hefur sýnt að hann getur blásið nýju lífi í Tottenham-liðið. Á fyrstu mánuðum sínum við stjórnvölinn tókst honum að hrista upp í hópi sem hafði verið langt frá sínu besta og viðsnúningurinn gaf stuðningsmönnum ástæðu til bjartsýni. Á komandi tímabili má búast við mun meiri ákefð og skemmtun undir stjórn Ítalans. Persónuleiki De Zerbi er einnig hluti af pakkanum. Hann er skapmikill á hliðarlínunni og lætur oft í sér heyra, en líklegt er að stuðningsmenn Tottenham taki því fagnandi.
Spáin fyrir enska - 6. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Eins og áður segir hefur Tottenham farið hamförum á leikmannamarkaðnum í sumar.

„Þetta höfum við aldrei séð áður" - Hvað er að gerast hjá Tottenham?
TENGT EFNI

„Þetta höfum við aldrei séð áður" - Hvað er að gerast hjá Tottenham?



Komnir:
Sandro Tonali frá Newcastle - 92,5 milljónir punda
Mateus Fernandes frá West Ham - 85 milljónir punda
Jan Paul van Hecke frá Brighton - 52 milljónir punda
Martin Dubravka frá Burnley - Á frjálsri sölu
Marcos Senesi frá Bournemouth - Á frjálsri sölu
Andy Robertson frá Liverpool - Á frjálsri sölu

Farnir:
Luka Vuskovic til Brighton - 46 milljónir punda
Cristian Romero til Atletico Madrid - 34,1 milljón punda
Djed Spence til Inter - 25,6 milljónir punda
Will Lankshear til Middlesbrough - 20 milljónir punda
Alejo Véliz til Bahia - 7,8 milljónir punda
Ashley Phillips til Middlesbrough - 7 milljónir punda
Alfie Devine til Preston - 6 milljónir punda
Manor Solomon til West Ham - 5 milljónir punda
Tynan Thompson til Manchester United - 4 milljónir punda
Radu Dragusin til Fiorentina - Á láni
Spáin fyrir enska - 6. sæti

Mynd: EPA

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob


Lykilmaður: Sandro Tonali
Ef þú ert keyptur á svona mikinn pening, þá verður þú að teljast algjör lykilmaður. Tonali er leikmaður sem var frábær fyrir Newcastle og hann er jafnframt leikmaður sem Roberto De Zerbi, stjóri Spurs, var æstur í að fá yfir til London. Tonali er frábær á boltanum og mjög góður í því að bera hann upp, og kemur hann með eiginleika inn í Tottenham liðið sem vantaði sárlega á síðasta tímabili.

Gaman að fylgjast með: Mikey Moore
Ungur kantmaður sem stuðningsmenn Tottenham hafa beðið eftir en hann hefur verið að heilla mikið í síðustu leikjum á undirbúningstímabilinu. Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Rangers í Skotlandi og var hann þar valinn besti ungi leikmaðurinn. Hann var orðaður við félög í Þýskalandi í sumar en svo virðist sem hann verði inn í myndinni hjá Spurs á komandi keppnistímabili og verður gaman að fylgjast með honum.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan fyrir Spurs væri að komast aftur í Meistaradeildina ásamt því að ganga vel í bikarkeppnunum. Við höfum séð það síðustu tímabil að þegar hlutirnir eru slæmir hjá Tottenham, þá eru þeir mjög slæmir. Ef allt fer á versta veg, þá verða þeir í bulli í neðri hlutanum eins og hefur gerst síðustu tvö tímabil.
Spáin fyrir enska - 6. sæti

Mynd: Tottenham

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Tottenham, 186 stig
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 6. sæti

Mynd: EPA

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.