Fotbolti.net
17.08.26 - 22:21
Ívan Guðjón Baldursson

Elfar Árni: Þurfum að vinna rest

Auglýsing
Elfar Árni: Þurfum að vinna rest
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Elfar Árni Aðalsteinsson var á sínum stað í byrjunarliði Völsungs fyrr í kvöld og innsiglaði dýrmætan 2-0 sigur gegn Vestra.
Lestu um leikinn: Völsungur 2 - 0 Vestri
Þetta var þriðji sigur Völsungs í röð í Lengjudeildinni og á liðið möguleika á að bjarga sér frá falli, eitthvað sem virtist ómögulegt fyrir nokkrum vikum.

„Það var seiglan sem skilaði þessum sigri. Við héldum boltanum vel í fyrri hálfleik en tempóið hjá okkur var alltof hægt svo við náðum ekki að finna réttar opnanir. Í seinni hálfleik náðum við ekki að halda jafn vel í boltann en áttum fínar skyndisóknir," sagði Elfar Árni í viðtali að leikslokum.

„Við náðum að klára þetta með tveimur mörkum á lokakaflanum eftir góðar innkomur af varamannabekknum sem veittu okkur aukinn kraft."

En hvað þarf Völsungur að gera til að forðast fall? Húsvíkingar eiga eftir að spila við Njarðvík, ÍR og Gróttu í lokaumferðunum.

„Við þurfum bara að vinna rest, það ætti að duga. Við verðum bara að taka einn leik í einu og reyna að vinna þessa leiki."
Elfar Árni: Þurfum að vinna rest
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.