Fotbolti.net
17.08.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Skotmark Liverpool ekki í hóp - Vicario færist nær Juve

Bradley Barcola í leik með franska landsliðinu.

Bradley Barcola í leik með franska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Heil og sæl og velkomin í slúðurpakkann á þessum mánudagsmorgni. Liverpool vill fá Barcola, Barcelona er að tryggja sér Rodri og Vicario nálgast Juventus. Þetta og fleira í pakka dagsins.
Bradley Barcola (23), skotmark Liverpool, var ekki í leikmannahópi Paris Saint-Germain þegar liðið tapaði gegn Lens í franska Ofurbikarnum. Liverpool er tilbúið að borga PSG í kringum 100 milljónir punda fyrir Barcola. (BBC)

Barcelona hefur samið við Manchester City um að kaupa miðjumanninn Rodri (30) fyrir um 65 milljónir punda. (BBC)

Juventus er komið á næsta stig í viðræðum við Tottenham um að fá ítalska markvörðinn Guglielmo Vicario (29) á lánssamningi með möguleika á kaupum. (Sky Sports)

Emiliano Martínez (33), markvörður Aston Villa, mun ekki ganga til liðs við Juventus í sumar eftir viðræður milli félaganna. (Athletic)

Manchester City hefur áhuga á að fá portúgalska vængmanninn Pedro Neto (26) frá Chelsea en mun mæta samkeppni frá Al-Hilal. (Talksport)

Jose Mourinho, nýr stjóri Real Madrid, vill fá spænska miðjumanninn Martin Zubimendi (27) frá Arsenal. (Teamtalk)

Nottingham Forest hefur blandað sér í baráttuna um Liam Delap (23) frá Chelsea. Enski framherjinn vill vera áfram í ensku úrvalsdeildinni. (Talksport)

Everton er fremst í baráttunni um Delap, en Chelsea hefur þegar sagt leikmanninum að hann geti yfirgefið félagið í sumar. (Teamtalk)

Newcastle er að undirbúa 47 milljóna punda tilboð í georgíska framherjann Georges Mikautadze (25) hjá Villarreal. Barcelona hefur einnig áhuga. (Fichajes)

Nígeríski framherjinn Victor Osimhen (27) útilokar ekki að hann fari frá Galatasaray í sumar. Arsenal hefur áhuga. (Caught Offside)

Coventry City er að nálgast kaup á Sidiki Cherif (19) frá Fenerbahce eftir að hafa náð samkomulagi um gíneska framherjann, (Give Me Sport)

Everton hefur áhuga á að fá enska miðjumanninn Marcus Tavernier (27) frá Bournemouth áður en félagaskiptaglugginn lokar. (Football Insider)

Samkomulag er að nást um að Joel Piroe (27), framherji Leeds United, gangi til liðs við West Ham United. (Voetbal International)

Hull City er í viðræðum um 21 milljóna punda kaup á framherjanum Andreas Tetteh (25) frá Panathinaikos, en Roma hefur einnig áhuga á gríska landsliðsmanninum. (Ekrem Konur)

Enski vinstri bakvörðurinn Harry Amass (19) gæti verið seldur frá Manchester United. (Mail)

Franski miðjumaðurinn Youssouf Fofana (27) er ekki í áætlunum Rúben Amorim, hjá AC Milan. Nottingham Forest og Crystal Palace hafa nú áhuga. (Football Insider)

Atletico Madrid reynir að skáka Barcelona í baráttunni um marokkóska miðjumanninn Azzedine Ounahi (26), sem Girona metur á um 25 milljónir evra (21,3 milljónir punda). (Fichajes)
Guglielmo Vicario.

Guglielmo Vicario.

Canon

Mynd: EPA

Martin Zubimendi.

Martin Zubimendi.

Canon

Mynd: Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.