Fotbolti.net
17.08.26 - 21:32
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeildin: Þróttur á toppinn

Lengjudeildin: Þróttur á toppinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur R. er kominn á topp Lengjudeildarinnar eftir að fjögur af toppliðunum fimm áttust við í kvöld.
Þróttur lagði Fylki að velli og er með 37 stig eftir 19 umferðir, einu stigi fyrir ofan Aftureldingu sem gerði jafntefli við HK en á leik til góða.

Sigurður Egill Lárusson skoraði fyrsta markið í Laugardalnum með stórkostlegu skoti langt fyrir utan teig. Sigurður tók eina snertingu áður en hann þrumaði boltanum undir samskeytin, gjörsamlega óverjandi fyrir Ólaf Kristófer Helgason markvörð. Mögulega mark sumarsins.

Heimamenn voru sterkari aðilinn og tvöfaldaði Aron Snær Ingason forystuna þegar hann slapp í gegn og gerði vel að klára með marki eftir harða baráttu.

Þróttarar komust nálægt því að bæta þriðja markinu við fyrir leikhlé en tókst ekki, svo staðan var 2-0 í hálfleik. Gestirnir úr Árbæ vöknuðu til lífsins í síðari hálfleik og minnkaði Eyþór Aron Wöhler muninn með skalla eftir fyrirgjöf frá Bjarka Steinsen Arnarssyni

Fylkir stjórnaði ferðinni og komst nálægt því að jafna metin en tókst ekki. Þegar tók að líða á seinni hálfleikinn jafnaðist leikurinn út og innsiglaði Magnús Þórðarson sigur heimamanna eftir langa markspyrnu upp völlinn. Aron Snær var afar líflegur og átti stoðsendinguna sem innsiglaði sigurinn, lokatölur 3-1.

Fylkir situr eftir í þriðja sæti deildarinnar með 34 stig.

Afturelding náði þá forystunni snemma leiks gegn HK í Mosfellsbæ þegar Óðinn Bjarkason kláraði með snyrtilegri afgreiðslu eftir laglegt þríhyrningsspil við Aron Elí Sævarsson í gegnum hjarta varnarinnar.

Breki Hólm Baldursson var ekki lengi að jafna metin fyrir gestina með algjöru draumamarki. Hann fékk mikinn tíma og pláss langt fyrir utan teig, lagði boltann fyrir sig og klíndi honum undir samskeytin fjær. Alvöru mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum fyrir HK. Breki kom á láni frá KA rétt fyrir gluggalok.

Leikurinn róaðist niður eftir jöfnunarmarkið en heimamenn fengu dæmda vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hendi var dæmd eftir hornspyrnu. Aron Elí steig á punktinn en Ólafur Örn Ásgeirsson gerði mjög vel að verja spyrnuna svo staðan var jöfn í hálfleik, 1-1.

Gestirnir náðu forystunni á 57. mínútu þegar Viktor Helgi Benediktsson skallaði aukaspyrnu í netið en heimamenn jöfnuðu þremur mínútum síðar. Þar var Haukur Örn Brink á ferðinni og gerði hann frábærlega að vinna boltann á eigin vallarhelmingi áður en hann kláraði sóknina með góðu marki á hinum endanum.

Afturelding var sterkari aðilinn á síðasta hálftíma leiksins og fékk tvö dauðafæri sem fóru forgörðum. HK-ingar sluppu því með stig.

Afturelding er einu stigi á eftir toppliði Þróttar og með leik til góða. HK er í fjórða sæti, fimm stigum frá toppnum.

Þróttur R. 3 - 1 Fylkir
1-0 Sigurður Egill Lárusson ('6 )
2-0 Aron Snær Ingason ('29 )
2-1 Eyþór Aron Wöhler ('51 )
3-1 Magnús Þórðarson ('86 )

Lestu um leikinn



Afturelding 2 - 2 HK
1-0 Óðinn Bjarkason ('9 )
1-1 Breki Hólm Baldursson ('13 )
1-1 Aron Elí Sævarsson ('45 , misnotað víti)
1-2 Viktor Helgi Benediktsson ('57 )
2-2 Haukur Örn Brink ('60 )

Lestu um leikinn
Lengjudeildin: Þróttur á toppinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin: Þróttur á toppinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin: Þróttur á toppinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin: Þróttur á toppinn
Canon

Mynd: HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.