17.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kamerún tryggði sinn fyrsta Afríkumeistaratitil

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Kamerún 3 - 0 Malaví
1-0 Marie Ngah Manga ('20)
2-0 Naomi Eto ('30)
3-0 Marie Ngah Manga ('45+3)
1-0 Marie Ngah Manga ('20)
2-0 Naomi Eto ('30)
3-0 Marie Ngah Manga ('45+3)
Kamerún tryggði sér sinn fyrsta Afríkumeistaratitil í kvennaflokki með sannfærandi sigri á Malaví í úrslitaleiknum í gær.
Marie Ngah Manga skoraði fyrsta markið áður en Naomi Eto tvöfaldaði forystuna. Eto skapaði svo þriðja markið í uppbótartíma fyrri hálfleiks fyrir Manga, svo staðan var 3-0 í leikhlé er þjóðirnar mættust í Rabat, höfuðborg Marokkó.
Hvorugu liði tókst að bæta við marki í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 3-0. Malaví var að keppa í sinni fyrstu Afríkukeppni í kvennaflokki og komst alla leið í úrslitaleikinn þökk sé systrunum öflugu Tabitha og Temwa Chawinga.
Kamerún gerði vel að halda systrunum niðri til að tryggja sögulegan sigur.