Fotbolti.net
17.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mikill áhugi á Raoul Bellanova

Mikill áhugi á Raoul Bellanova
Canon

Mynd: EPA

Vængbakvörðurinn skemmtilegi Raoul Bellanova er 26 ára gamall og hefur vakið mikla athygli á sér frá enskum úrvalsdeildarfélögum.
Hann er samningsbundinn Atalanta næstu þrjú árin og vill félagið ekki selja ítalska landsliðsmanninn sem spilaði rúmar 2000 mínútur á síðustu leiktíð.

Atalanta hafnaði 20 milljón evra tilboði frá Fulham og eru Everton, Tottenham, Nottingham Forest, Real Sociedad, Napoli og Fiorentina einnig meðal áhugasamra félaga.

Bellanova var algjör lykilmaður upp unglingalandsliðin en hann er 26 ára og hefur aðeins spilað sex A-landsleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.