Fotbolti.net
17.08.26 - 14:08
Elvar Geir Magnússon

Munu hafna öllum tilboðum í Bruno

Bruno Fernandes sló stoðsendingamet í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Bruno Fernandes sló stoðsendingamet í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hyggst hafna öllum tilboðum sem gætu borist í fyrirliðann Bruno Fernandes áður en glugganum verður lokað í næsta mánuði.
Tyrkneska félagið Galatasaray og ítölsku risarnir Juventus og AC Milan hafa verið að íhuga hvort þau ættu að gera tilboð. Breska ríkisútvarpið segir hinsvegar að Fernandes sé ekki til sölu.

Félög í Sádi-Arabíu hafa einnig horft löngunaraugum til þessa 31 árs portúgalska landsliðsmanns sem á eitt ár eftir af samningi sínum. Í samningnum er möguleiki á framlengingu um eitt ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.