Fotbolti.net
17.08.26 - 17:50
Ívan Guðjón Baldursson

Piroe í læknisskoðun hjá West Ham

Piroe í læknisskoðun hjá West Ham
Canon

Mynd: EPA

Joël Piroe hefur fengið leyfi frá Leeds United til að ferðast til London þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá West Ham United.
Vill fara frá Leeds
TENGT EFNI

Vill fara frá Leeds

Hann fer til West Ham á lánssamningi með kaupskyldu, en fjölmiðlum greinir á um hvort kaupskyldan sé árangurstengd eða ekki. Þeir eru þó sammála um að Hamrarnir munu borga full laun framherjans á meðan á lánsdvölinni stendur og að kaupskyldan nemur 15 milljónum punda.

Það þykir ljóst að ef kaupskyldan er árangurstengd þá þarf Piroe að framlengja samning sinn við Leeds um eitt ár áður en hann getur verið lánaður út.

Piroe er 27 ára gamall og var í aukahlutverki hjá Leeds á síðustu leiktíð, eftir að hafa átt mikilvægan þátt í að koma liðinu upp í úrvalsdeildina ári fyrr.

West Ham leikur í Championship deildinni í vetur og býr Piroe yfir mikilli reynslu þaðan. Hann hefur skorað 73 mörk í 179 leikjum í deildinni.
Piroe í læknisskoðun hjá West Ham
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.