Fotbolti.net
17.08.26 - 14:21
Kári Snorrason

Tómas Óli úlnliðsbrotinn

Á að baki 30 leiki fyrir yngri landsliðin.

Á að baki 30 leiki fyrir yngri landsliðin.

Canon

Mynd: EPA

Unlingalandsliðsmaðurinn Tómas Óli Kristjánsson verður frá í nokkrar vikur eftir að hann úlnliðsbrotnaði í leik með U19 liði AGF gegn Silkeborg á laugardaginn.

Tómas, sem er 18 ára gamall, hefur komið sterkur inn í meistaralið AGF og skoraði hann meðal annars í leik liðsins gegn Lech Poznan í forkeppni Meistaradeildarinnar nýverið.
Tómas hetjan í sögulegum sigri - „Viss um að ég myndi setja hann“
TENGT EFNI

Tómas hetjan í sögulegum sigri - „Viss um að ég myndi setja hann“

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ítalska félagið Genoa og þýska félagið Stuttgart með augastað á Tómasi.

Arhus Stiftstidende fjallar um meiðsli Tómasar og segja að hann verði frá í nokkrar vikur í hið minnsta en AGF á enn eftir að staðfesta meiðslin.

Hann spilaði fimm mínútur gegn Viborg með aðalliðinu á föstudaginn og spilaði því leikinn með U19 liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.