þri 17. september 2019 17:54
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Napoli og Liverpool: Milner og Henderson byrja
Mynd: Getty Images
Liverpool heimsækir Napoli í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og hafa byrjunarliðin verið staðfest.

Það er ekki margt á óvart í liðsvali Jürgen Klopp. James Milner byrjar á miðjunni ásamt Fabinho og Jordan Henderson og er Georginio Wijnaldum á bekknum.

Í liði Napoli byrjar Hirving Lozano í framlínunni ásamt Dries Mertens, með Jose Callejon og Lorenzo Insigne á köntunum. Hinn eftirsótti Fabian Ruiz er á miðsvæðinu ásamt brasilíska vinnuþjarkinum Allan.

Liðin mættust einnig í riðlakeppninni í fyrra og hafði Napoli þá betur, 1-0, á heimavelli. Liverpool og PSG komust að lokum upp úr riðlinum á kostnað Napoli.

Napoli: Meret; Di Lorenzo, Manolas, Koulibaly, Mario Rui; Callejon, Allan, Fabian Ruiz, Insigne; Mertens, Lozano
Varamenn: Ospina, Llorente, Elmas, Maksimovic, Zielinski, Ghoulam, Milik

Liverpool: Liverpool: Adrian, Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Milner, Henderson, Mane, Salah, Firmino
Varamenn: Kelleher, Wijnaldum, Lovren, Gomez, Oxlade-Chamberlain, Lallana, Shaqiri

Athugasemdir
banner
banner
banner