Fotbolti.net
17.09.20 - 09:06
Magnús Már Einarsson

Neil Warnock með kórónuveiruna

Neil Warnock með kórónuveiruna
Canon

Mynd: Getty Images

Neil Warnock, stjóri Middlesbrough, hefur greinst með kórónuveiruna en félagið staðfesti þetta í dag.

Warnock er kominn í einangrun og verður fjarri góðu gamni þegar Middlesbrough fær Bournemouth í heimsókn í Championship deildinni á laugardaginn.

Hinn 71 árs gamli Warnock greindist með veiruna þegar leikmenn og starfsfólk Middlesbrough fóru í próf í vikunni.
Enginn leikmaður Middlesbrough greindist með veiruna og liðið undirbýr sig eins og vanalega fyrir leik helgarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.