17.09.26 - 16:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lovísa Scheving spáir í fyrstu umferð Bestu kvenna eftir skiptingu

Mynd: Grótta

Arnfríður Auður skorar sigurmarkið á Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Grótta

Það er komið að 19. umferð Bestu deildarinnar, eða fyrstu umferð eftir tvískiptingu deildarinnar. Efstu sex liðin berjast innbyrðis um tvö Evrópusæti og neðstu fjögur berjast um tvö örugg sæti í deildinni. Umferðin hefst í kvöld og lýkur á laugardag.
Lovísa Davíðsdóttir Scheving er leikmaður Gróttu sem vann Lengjudeildina í sumar og mun Grótta spila í Bestu deildinni á næsta ári. Lovísa er spákona umferðarinnar.
Lovísa Davíðsdóttir Scheving er leikmaður Gróttu sem vann Lengjudeildina í sumar og mun Grótta spila í Bestu deildinni á næsta ári. Lovísa er spákona umferðarinnar.
Breiðablik 2 - 1 Grindavík/Njarðvík (19:15 í kvöld)
Grindavík/Njarðvík kemst 0-1 yfir í fyrri hálfleik en Breiðablik jafnar stuttu seinna. Ég held að leikurinn verði jafn en Hrafnhildur Ása skorar svo sigurmark fyrir Breiðablik á síðustu mínútum leiksins!
FH 3 - 1 Stjarnan (16:30 á morgun)
Þægilegur sigur hjá FH sem hafa verið mjög góðar í sumar og halda áfram að spila skemmtilegan fótbolta. Hildur Katrín skorar fyrir FH!
ÍBV 1 - 2 Þróttur (17:15 á morgun)
Þróttarasigur þar sem önnur hvor Allison skorar fyrir ÍBV og Bríet Fjóla fyrir Þrótt.
Fram 0 - 2 Víkingur (18:00 á morgun)
Víkingur er að detta í gang og vinna góðan útisigur í Úlfarsárdalnum.
Valur 2 - 1 Þór/KA (16:00 á laugardag)
Spennandi leikur og mikið undir fyrir bæði lið. Arna Sif skorar eftir fast leikatriði en Emma Hawkins jafnar fyrir Val. Arnfríður Auður skorar fallegt mark í síðari hálfleiknum og þar við situr.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 18 | +25 | 37 |
| 2 | FH | 18 | +24 | 37 |
| 3 | ÍBV | 18 | -3 | 27 |
| 4 | Stjarnan | 18 | +4 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 18 | -3 | 23 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 18 | -8 | 22 |
| 7 | Fram | 18 | -15 | 22 |
| 8 | Valur | 18 | -9 | 20 |
| 9 | Víkingur R. | 18 | -11 | 20 |
| 10 | Þór/KA | 18 | -4 | 19 |