17.09.26 - 18:04
Albert Guðmundsson
Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Pálmi Freyr Hauksson
Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Pálmi Freyr er fyrrum þáttastjórnandi Lélega fantasy podcastsins

Mynd: Þjóðleikhúsið

Liðið hans Pálma fékk 100 stig í umferð 4

Mynd: Fantasy Premier League

Pálmi stendur frammi fyrir því vali hvort hann eigi að treysta Harry Maguire umfram Pascal Gross sem á erfiðan útileik gegn Arsenal

Mynd: EPA

Nýr þáttur af 38 umferðum kom út í vikunni en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
Strákarnir taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessari viku var það Pálmi Freyr Hauksson spunaleikari í Improv Ísland og grínisti.
Pálmi er ekki bara hæfileikaríkur á sviði og fyrir framan myndavélina heldur er hann líka öflugur fantasy spilari. Hann hefur spilað fantasy í 6 ár og aldrei endað neðar en í sæti 370 þúsund á heimsvísu og tvisvar náð inn í topp 50 þúsund.
Í ár er hann í kjörstöðu að bæta sinn besta árangur en eftir 4 umferðir situr hann í sæti 23 þúsund. Þess má til gamans geta að Pálmi hélt úti hlaðvarpi um tíma ásamt tveimur félögum sínum sem kallaðist einfaldlega Lélega fantasy podcastið. Hlaðvarpið veitti fyrrum fantasy hlaðvarpi Fótbolta.net "Fantabrögð" mikið aðhald og myndaðist talsverður rígur milli þessara tveggja hlaðvarpa sem hefur þó umbreyst yfir í óttablandina virðingu í dag.

Liðið hans Pálma sem ber nafnið "Pálma Pollarnir" sótti 100 stig í 4. umferð og var skipað eftirfarandi leikmönnum:
Markmaður
Verbruggen (8)
Varnarmenn
Konsa (6), Calafiori (6), Muharemovic (7)
Miðjumenn
Fernandes (2), Rogers (8), Szoboszlai (3), Gross (17)
Sóknarmenn
Calvert-Lewin (10), Pedro C (24), Haaland (9)
Allir leikmenn Pálma komu með eitthvað að borðinu fyrir utan Fernandes og Szoboszlai en þeir munu eflaust bæta það upp fyrr en síðar.
Við slógum á þráðinn til Pálma og hann segir að hann sé undir feldi með þá ákvörðun hvort treysta eigi á Gross á útivell gegn Arsenal í næstu umferð eða "out of form" Harry Maguire á Craven Cottage. Planið er að nota wildcard í landsleikjahléinu og reyna að eltast við verðhækkanir á leikmönnum. Í ljósi þess að Pedro er meiddur er það að freista að taka einnar viku gaman með Barry í Everton sem á heimaleik gegn Ipswich. Að lokum ítrekar Pálmi þá kvöl sem fylgir því að halda með Manchester United og telur sitt gengi í Fantasy ávallt vera öfugt við gengi Rauðu djöflanna.
Við óskum Pálma góðs gengis í ár og vonum að hann nái að byggja ofan á þessa góðu byrjun.
Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net og á YouTube.
Frestur til að gera breytingar fyrir 5. umferð er kl 17:30 á föstudag.
Liðið hans Pálma er tekið fyrir á mínútu 1:01:22 í þættinum sem má sjá hér fyrir neðan.