Fotbolti.net
17.10.26 - 15:58
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Þórsarar sendu nágranna sína í fallsæti

Þórsarar eru komnir upp úr fallsæti fyrir lokaumferðina

Þórsarar eru komnir upp úr fallsæti fyrir lokaumferðina

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór 3 - 1 Stjarnan
0-1 Örvar Eggertsson ('3 )
1-1 Ásbjörn Líndal Arnarsson ('11 )
2-1 Sverrir Páll Ingason ('19 )
3-1 Þorri Ingólfsson ('58 )
Lestu um leikinn
Þórsarar eru komnir upp úr fallsæti fyrir lokaumferð Bestu deildar karla eftir gríðarlega mikilvægan 3-1 sigur á Stjörnunni á VÍS-vellinum í dag.

Nágrannar þeirra í KA töpuðu 4-1 fyrir Val fyrr í dag og því fengu Þórsarar gullið tækifæri til að komast upp fyrir þá í töflunni. Það tækifæri létu þeir ekki renna sér úr greipum.

Byrjun Þórsara var hins vegar arfaslök og eftir aðeins þrjár mínútur kom Örvar Eggertsson Stjörnunni yfir. Emil Atlason komst þá í dauðafæri en Aron Birkir Stefánsson varði frá honum. Emil náði frákastinu en tókst ekki að koma boltanum á markið. Hann hélt hins vegar boltanum í leik og náði að skýla honum áður en Örvar mætti á svæðið og kom honum yfir línuna.

Heimamenn voru þó ekki lengi að svara og aðeins átta mínútum síðar jafnaði Ásbjörn Líndal Arnarsson metin með hörkuskoti beint úr aukaspyrnu. Árni Snær Ólafsson í marki Stjörnunnar hefði þó mátt gera betur og verður að taka markið að einhverju leyti á sig.

Á 19. mínútu var Þór svo komið yfir. Sverrir Páll Ingason fékk boltann hægra megin, lék inn á völlinn og kom sér í góða stöðu inni í vítateignum áður en hann renndi boltanum snyrtilega í fjærhornið.

Þetta voru fyrstu mörk þeirra Ásbjarnar og Sverris á tímabilinu og óhætt að segja að þeir hafi valið hárréttan tíma til að opna markareikninginn.

Þórsarar fóru því með 2-1 forystu inn í hálfleikinn og á 58. mínútu bætti Þorri Ingólfsson við þriðja markinu eftir frábæra skyndisókn. Heimamenn unnu boltann á miðjunni og keyrðu upp völlinn áður en Einar Freyr Halldórsson sendi laglega inn á Þorra, sem kláraði færið af miklu öryggi fram hjá Árna.

Eftir þetta náðu Þórsarar að halda Stjörnumönnum vel í skefjum og gestirnir áttu erfitt með að skapa sér hættuleg færi.

Það var ekki fyrr en undir lokin sem Andri Rúnar Bjarnason fékk dauðafæri til að hleypa spennu í leikinn á ný. Eftir misheppnaða skallahreinsun úr vörn Þórs fékk hann boltann í kjörstöðu en skaut fram hjá markinu.

Þar við sat og Þórsarar fögnuðu lífsnauðsynlegum 3-1 sigri sem kemur þeim upp úr fallsæti þegar aðeins ein umferð er eftir af mótinu.

Þór er nú í tíunda sæti með 27 stig og sendir um leið nágranna sína í KA niður í ellefta sætið, en KA-menn eru með 26 stig.

Það verður því gríðarleg spenna í lokaumferðinni þar sem Þór heimsækir FH á meðan KA tekur á móti ÍBV fyrir norðan.
Besta deildin: Þórsarar sendu nágranna sína í fallsæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur26-234
2Stjarnan25-1231
3FH26-630
4KA26-1326
5Þór25-3324
6ÍBV26-1422
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.