Fotbolti.net
09.11.26 - 19:12
Ívan Guðjón Baldursson

Harry Kane ekki valinn í lið ársins hjá FIFPro

Harry Kane ekki valinn í lið ársins hjá FIFPro
Canon

Mynd: EPA

Á hverju ári síðan 2005 hafa FIFPro, alþjóðleg samtök atvinnumanna í fótbolta, staðið fyrir kjöri á draumaliði ársins.
Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði
TENGT EFNI

Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði

Það vekur mikla athygli að í ár er það í fyrsta sinn í sögu draumaliðsins sem sigurvegari Ballon d'Or er ekki valinn, en Harry Kane er hvergi sjáanlegur í liði ársins hjá FIFPro.

Erling Haaland og Lionel Messi hlutu fleiri atkvæði heldur en Kane og verma því öfluga sóknarlínu draumaliðsins ásamt Kylian Mbappé og Lamine Yamal.

Það komu tíu sóknarmenn til greina fyrir fjögur sæti í draumaliðinu og endaði Kane með 27,6% atkvæðahlutfall, sem dugði ekki til.

Erling Haaland skoraði hærra með 28,4% hlutfall og var Lionel Messi með 29,5% hlutfall. Lamine Yamal skoraði 37,4% og var næstvinsælastur í kjörinu á eftir Kylian Mbappé, sem náði upp í 46%.

Michael Olise, Khvicha Kvaratskhelia, Cristiano Ronaldo, Ousmane Dembélé og Raphinha komu einnig til greina í sóknarlínuna.

David Raya markvörður Arsenal er á milli stanganna og má finna báða bakverði Paris Saint-Germain í varnarlínunni, þá Nuno Mendes og Achraf Hakimi.

Spánverjarnir Pau Cubarsí og Rodri eru einnig í liðinu ásamt Jude Bellingham og Vitinha.

Draumaliðið:
David Raya (Arsenal, Spánn)
Achraf Hakimi (PSG, Marokkó)
Pau Cubarsí (Barcelona, Spánn)
Nuno Mendes (PSG, Portúgal)
Rodri (Man City/Barcelona, Spánn)
Vitinha (PSG, Portúgal)
Jude Bellingham (Real Madrid, England)
Lamine Yamal (Barcelona, Spánn)
Kylian Mbappé (Real Madrid, Frakkland)
Erling Haaland (Man City, Noregur)
Lionel Messi (Inter Miami, Argentína)


Harry Kane ekki valinn í lið ársins hjá FIFPro
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane ekki valinn í lið ársins hjá FIFPro
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.