Fotbolti.net
18.01.21 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Myndir: Fótboltamenn ósýnilegir í snjónum

Myndir: Fótboltamenn ósýnilegir í snjónum
Canon

Mynd: Getty Images

Það var erfitt að fylgjast með leik Sivasspor og Istanbul Basaksehir í tyrknesku úrvalsdeildinni um helgina.
Það var erfitt fyrir þær sakir að það snjóaði og lið Sivasspor mætti í leikinn í hvítum búningum.

Snjór byrjaði að falla eftir um 20 mínútur af leiknum og í seinni hálfleiknum var völlurinn allur orðinn hvítur. Þegar það gerðist var orðið gríðarlega erfitt að sjá leikmenn Sivasspor; þeir urðu ósýnilegir.

Leikurinn hélt hins vegar áfram og kláraðist með 1-1 jafntefli.

Þetta var enginn draumaleikur að horfa á í sjónvarpi eins og sjá má á myndunum hér að neðan.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.