Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 18. janúar 2022 14:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frank: Held ég ætti ekki að ræða um Eriksen við ykkur
Mynd: EPA
Christian Eriksen var í gær orðaður við Brentford og gæti skrifað undir hálfs árs samning við félagið.

Sjá einnig:
Eriksen í viðræðum við Brentford

Thomas Frank, stjóri Brentford, ræddi um Eriksen á fréttamannafundi í dag. Framundan er viðureign Brentford og Manchester United á morgun.

„Christian er mjög góður leikmaður, allir vita það. Ég hef unnið með honum í fortíðinni. Hann verður að finna félag. Ég elska að tala um leikmenn innan okkar hrbúða. Ég held ég ætti ekki að ræða Eriksen við ykkur," sagði Frank.

„Hann var ungur strákur þegar við unnum saman. Hann er karlmaður í dag og einn besti fótboltamaður í heimi. Ég virkilega vona að hann komi aftur í toppfótbolta," bætti Frank við.


Athugasemdir
banner
banner