Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   mið 18. febrúar 2026 21:38
Snæbjört Pálsdóttir
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
Kvenaboltinn
Elísa Viðars skoraði sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik
Elísa Viðars skoraði sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik
Mynd: Breiðablik

Breiðablik tapaði 1-4 gegn sænska liðinu Håcken á Kópavogsvelli í kvöld og samanlagt 1-11 í einvígi þeirra í 8. liða úrslitum Evrópubikarsins. 

„Allt önnur frammistaða en við sýndum í síðustu viku og ég held að það sé klárega eitthvað sem við getum byggt ofan á." Svaraði Elísa Viðarsdóttir nýr leikmaður Breiðabliks aðspurð um fyrstu tilfinningarnar eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 Häcken

„Liðið var svekkt eftir frammistöðuna síðast og vorum staðráðnar í því að mæta hérna í dag á Kópavogsvöll og sýna okkar fólki að munurinn væri ekki svona mikill og ég held að við höfum alveg sýnt sjálfum okkur það og sýnt þannig frammistöðu að það hefði ekki einu sinnio þurft að vera 4-1 tap miðað við frammistöðuna. Þannig við erum ánægðar með frfammitsöðuna og gott svar við síðasta leik." 

„Við lögðum mikla vinnu á okkur í þessari viku í aðdraganda leiksins að loka ákveðnum svæðum og loka á ákveðna leikmenn hjá þeim og ég held að það hafi tekist svona þrátt fyrir að þær skori fjögur mörk."

„Þær eru líka bara frábærar í fótbolta og um leið og þær fá tíma á boltann eru þær fljótar að refsa en við fengum mörg svör í dag og miklu, miklu betri frammistaða en í síðustu viku."

Elísa skoraði eina mark Breiðabliks í þessu einvígi og sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik 

„Ég smellhitti hann og ekki skemmir fyrir að Fanney hafi verið í markinu. Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda á æfingum en það var geggjað að gera það í keppnisleik."

Hvernig líður Elísu að vera komin í græna treyju?

„Mér líður mjög vel, það er búið að taka rosalega vel á móti mér hérna í Breiðablik og bara frábær hópur, frábært þjálfarateymi, frábær umgjörð og mér líður bara mjög vel." 


Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner