Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 19:54
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópubikar kvenna: Auðvelt fyrir Häcken
Kvenaboltinn
Häcken vann heimaleik gegn Arsenal í Meistaradeildinni í september 2024. Arsenal stóð að lokum uppi sem sigurvegari mótsins.
Häcken vann heimaleik gegn Arsenal í Meistaradeildinni í september 2024. Arsenal stóð að lokum uppi sem sigurvegari mótsins.
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 1 - 4 Hacken
0-1 Paulina Nyström ('2)
0-2 Emma Östlund ('18)
1-2 Elísa Viðarsdóttir ('57)
1-3 Alva Selerud ('61)
1-4 Monica Jusu Bah ('65)

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 Häcken

Breiðablik er úr leik í Evrópubikarnum eftir stór töp bæði heima og úti gegn sænska stórveldinu BK Häcken, sem sló Inter út í síðustu umferð.

Mikil blóðtaka hefur verið á liði Breiðabliks eftir Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og áttu Kópavogskonur aldrei möguleika gegn þeim sænsku.

Häcken vann 7-0 á heimavelli og í kvöld náðu þær forystunni strax á 2. mínútu þegar Paulina Nyström skoraði með skoti frá vítateigslínunni. Emma Östlund tvöfaldaði forystuna með skalla eftir hornspyrnu og eftir það unnu Blikar sig inn í leikinn.

Breiðablik varðist vel eftir annað markið og komst í góðar sóknarstöður en tókst ekki að skapa alvöru færi, ekki fyrr en í síðari hálfleik þegar Elísa Viðarsdóttir minnkaði muninn með glæsimarki af löngu færi. Þetta er hinnar fyrsta mark fyrir Breiðablik.

Þær sænsku svöruðu með tveimur mörkum og fengu færi til að bæta við en tókst ekki, svo lokatölur urðu 1-4 á Kópavogsvelli. Samanlagt 11-1 fyrir Häcken.

Fanney Inga Birkisdóttir varði mark Häcken og lék Thelma Karen Pálmadóttir fyrri hálfleikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner