Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   mið 18. febrúar 2026 22:10
Snæbjört Pálsdóttir
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
Kvenaboltinn
Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks
Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks
Mynd: Breiðablik

Breiðablik tapaði 1-4 gegn sænska liðinu Håcken á Kópavogsvelli í kvöld og samanlagt 1-11 í einvígi þeirra í 8. liða úrslitum Evrópubikarsins. 

„Alltaf svekkjandi að tapa fótboltaleik og fá fjögur mörk á sig en mér fannst frammistaðan bara mjög góð hjá okkur í kvöld. Við gáfum þeim bara tvö mörk og þetta lið þarf ekki gjöf. Með virkilega góða leikmenn og kann alveg að refsa en þvílík bæting milli leikja."

Svaraði Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks þegar hann var spurður um leikinn. 


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 Häcken

„Leikurinn úti, við vorum að ströggla svolítið varnarlega séð, vorum svona að droppa of djúpt og ekki að ná að setja pressu á boltamann. Mér fannst við gera þetta bara virkilega vel í kvöld og mikil bæting í okkar leik á einni viku og ég er virkilega ánægður með það."

„Við breyttum aðeins í þriggja hafsenta kerfi með svona wingbacks sem höfðu leyfi til að stíga aðeins upp og það var að hjálpa okkur mjög mikið í kvöld. Það var miklu auðveldara fyrir okkur að koma hátt upp með liðið og pressa betur á þær og gekk virkilega vel."

„Fullt af góðum pressu mómentum í leiknum sem nýttust vel og svo vorum við að koma fleiri leikmönnum ofar á völlinn til að refsa þeim, skorum eitt mark og höfðum alveg fleiri tækifæri til að gera meira úr okkar sóknarleik."

„Við getum tekið það með okkur að það er ekkert lið á Íslandi svona gott (Håcken), það er bara staðreynd, þetta er bara virkilega gott lið og við erum búin að læra helling, við í þjálfarateyminu og leikmennirnir líka."

Það hefur komið fram að Breiðablik sé að leita að fleiri leikmönnum til að styrkja hópinn er eitthvað að frétta af því, eitthvað innanlands eða erlendis?

„Nei það er ekkert komið sem ég get sagt frá í viðtali, það er ekki staðfest og við erum að vinna í því og kemur í ljós með það en ekkert sem við erum að fara tilkynna á næstu dögum eða þannig."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner