Grétar Rafn: Mikilvægur leikur upp á framtíð riðilsins
Auglýsing

Grétar Rafn er einn reyndasti leikmaður landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Rafn Steinsson verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu á föstudag en þá tekur hann út leikbann. Grétar var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net síðasta föstudag og talaði þar um mikilvægi leiksins.
„Við eigum möguleika gegn öllum í þessum riðli en ég tel að þetta sé mjög mikilvægur leikur fyrir okkur ef við ætlum að halda okkur í baráttunni um annað sætið. Það verður skemmtilegt að sjá hvað við eigum inni, hvaða leikmenn hann (Lars Lagerback) notar og hvaða taktík við spilum,\" sagði Grétar.
„Slóvenarnir eru með sterkt lið og þá sérstaklega á heimavelli. Þeir eru með fimm stig, eru ekki langt frá okkur, þetta verður erfitt. Ef við töpum verður þetta orðið helvíti langsótt því þá þurfum við að fara að sækja sigur bæði til Noregs og Sviss sem gæti orðið virkilega erfitt.\"
„Það verður gaman að sjá hvernig strákarnir spjara sig. Ef við náum góðum úrslitum þarna verður mjög stór og skemmtilegur leikur í júní sem maður verður klár í. Framtíð riðilsins ræðst nokkurn veginn á þessum leik.\"
Grétar hefur sjálfur verið frá vegna meiðsla þar sem hann meiddist í nóvember en hann reiknar með að verða orðinn klár í fyrsta leik eftir landsleikjahlé.
Í spilaranum hér að ofan má hlusta á viðtalið við Grétar í heild sinni en þar talar hann meðal annars um lífið í Tyrklandi og gæði fótboltans þar. Grétar leikur fyrir Kayserispor.