Fotbolti.net
18.03.23 - 12:10
Aksentije Milisic

Æfingaleikur: Grindavík vann Fram í fimm marka leik

Æfingaleikur: Grindavík vann Fram í fimm marka leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Fram 2-3 Grindavík
Mörk Frammara: Jannick Pohl og sjálfsmark.
Mörk Grindavíkur: Einar Karl, Freyr Jónsson og Tómas Orri.

Bestu deildarlið Fram fékk Lengjudeildarlið Grindavík í heimsókn í gær í Úlfársdal í æfingaleik.

Heimamenn voru mun betri í fyrri hálfleiknum og leiddu leikinn með einu marki gegn engu. Í síðari hálfleiknum vöknuðu Grindvíkingar til lífsins og tóku yfir leikinn. 

Þeir skoruðu þrjú mörk í síðari hálfleiknum og unnu leikinn að lokum með þremur mörkum gegn tveimur. Einar Karl, Freyr Jónsson og Tómas Orri skoruðu mörk Grindavíkur í leiknum. Hjá Fram var Jannick Pohl á skotskónum en hitt markið var sjálfsmark.

Flott úrslit fyrir Grindavík en liðið hafnaði í fimmta sæti í sínum riðli í Lengjubikarnum. Þar vann Grindavík einn leik, gerði eitt jafntefli og tapaði þremur.

Fram lenti í þriðja sæti í sínum riðli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.