Fotbolti.net
01.11.26 - 13:07
Brynjar Ingi Erluson

Yfirgnæfandi líkur á að Endo og Chiesa yfirgefi Liverpool

Wataru Endo

Wataru Endo

Canon

Mynd: EPA

Wataru Endo og Federico Chiesa munu að öllum líkindum yfirgefa Liverpool á næsta ári en þetta segir Liverpool Echo.
Endo, sem leikur á miðjunni, hefur ekki spilað eina einustu mínútu á tímabilinu þrátt fyrir að hafa verið heill heilsu.

Hann hefur níu sinnum verið í leikmannahópnum án þess að koma við sögu og er auk þess ekki skráður í Meistaradeildarhóp félagsins.

Endo verður samningslaus á næsta ári og allar líkur eru á að hann yfirgefi félagið þegar samningurinn rennur út, jafnvel fyrr ef hann fær tækifæri til þess í janúar.

Ítalski vængmaðurinn Chiesa er annar leikmaður sem gæti verið á förum, en honum hefur ekki tekist að vinna sér fast sæti í liðinu síðan hann kom frá Juventus árið 2024.

Arne Slot notaði hann lítið á síðustu leiktíð þrátt fyrir að Chiesa hefði sýnt góða takta þegar hann kom inn af bekknum í nokkrum leikjum.

Á þessu tímabili hefur hann aðeins fengið að spila tvær mínútur undir stjórn Andoni Iraola.

Samningur Chiesa gildir út næsta tímabil, en samkvæmt Echo eru allar líkur á að hann yfirgefi félagið á næsta ári. Félög á Ítalíu eru þegar farin að renna hýru auga til hans.

Chiesa er heldur ekki skráður í Meistaradeildarhópinn og hefur aðeins verið í leikmannahópnum í tveimur leikjum á tímabilinu. Hann glímdi þó við bakmeiðsli í upphafi leiktíðar og var því ekki tiltækur á þeim tíma.
Federico Chiesa

Federico Chiesa

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.