Ronald Koeman, stjóri Barcelona, var ansi hissa í gær þegar hann þurfti að svara spurningum blaðamanna um eigin framtíð hjá félaginu.
Barcelona tapaði nýlega mikilvægum leik 'El Clasico' gegn Real Madrid í deildinni en hafði fyrir það verið á góðu róli undir stjórn Hollendingsins.
Blaðamenn voru ekki lengi að spyrja Koeman út í hans framtíð hjá félaginu og hvort hún væri í hættu eftir ansi brösugt gengi ef litið er á tímabilið í heild.
Koeman segir að það sé skrítið að þurfa að svara þessum spurningum en hann ræddi við blaðamenn fyrir sigur liðsins í úrslitaleik bikarsins. Barcelona vann þar Athletic Bilbao, 4-0.
„Það er ansi skrítið að ég þurfi að svara svona spurningum því við spiluðum 19 leiki án þess að tapa," sagði Koeman.
„Við töpum einum leik og ég þarf strax að tala um mína framtíð? Kannski þarf ég bara að sætta mig við þetta."
„Ég á eitt ár eftir af samningnum. Ég veit að pressan er mikil og ég get tekið því en þetta er stundum frekar skrítið."
Athugasemdir