Jói Kalli: Vissi það bara í gær
Auglýsing

Jóhannes Karl

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líst mjög vel á Åge, við áttum gott spjall í gær og fórum vel yfir hlutina. Hann er maður sem er með gríðarlega reynslu í alþjóðafótbolta. Ég er mjög spenntur að fá tækifæri til að vinna með honum," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson við Fótbolta.net.
Age Hareide, nýr landsliðsþjálfari Íslands, opinberaði það á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag að Jói Kalli yrði áfram aðstoðarþjálfari landsliðsins.

„Það var í raun bara eftir fyrsta fundinn okkar í gær. Ég vissi af ráðningu hans eins og alþjóð en við vildum ekki fara yfir hlutina fyrr en hann kæmi til landsins. Það var mjög góður fundur og okkur líst báðum vel á framhaldið."
Hvernig var tíminn frá því að Arnar var látinn fara þangað til þú vissir að þú yrðir aðstoðarmaður Age?
„Það var svolítið skrítið, viðurkenni það alveg, en ég var samt bara í mínu starfi. Ég hef einbeitt mér að því að halda því áfram eins og hægt var, starfið sem er framundan. Þegar hann er svo ráðinn inn í þetta þá hafði ekkert breyst af minni hálfu. Ég var spenntur að vinna með honum, án þess að hafa fengið skilaboð um að það yrði niðurstaðan," sagði Jói Kalli.
Hann var ráðinn aðstoðarmaður Arnars Þórs Viðarssonar í janúar á síðasta ári og hefur því verið í starfi aðstoðarþjálfara í tæpa fimmtán mánuði.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.